Eurovison
En ég mundi vilja breyta forkeppninni aðeins ...s.s. þegar búið er að fá "úrslitin" í símakosningunni og komið með 2 lög sem voru efst þá finnst mér að fólk eigi að fá að kjósa aftur á milli þeirra laga hvort þeirra ætti að fara sem framlag Íslands. Hvernig litist ykkur á það ?? Því oft er það þannig eins og núna var í raun bara ein ballaða sem var allt í lagi en það voru 2 eða 3 lög sem skiptu með sér Skemmtiatkvæðunum og því er í raun augljós hver vinnur. Allavega mundi mér finnst þessi leið mjög sniðug. Eins og núna fékk vinningslagið 19 þúsund atkvæði á meðan Ingó fékk tæp 11 þúsund og Hara systur eitthvað aðeins minna. Svo þarna er kenningin mín bara staðfest.
En ég ætla nú samt að vona að við komumst upp úr forkepnninni svo við getum haldið flott eurovision partý !!!
En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra
PET
ýmsar fréttir
Eldri börnin fengu flottar einkunnir og umsagnir í gær í skólanum og var voðalega lítið sem þarf að laga en það er bara verkefni fram á vor.
Ekkert sérstaklega gott veður í dag og því ætlum við bara að hafa það gott inni heima. Svo notalegt að vera bara inni í svona veðri. Erum að passa Eystein og hann er að fenna í kaf úti í vagninum sínum. En hann virðist hafa það mjög gott þar þrátt fyrir snjókomuna.
Ég var að setja inn færslu á barnaland og skaut aðeins á þá sem eru búnir að vera á leiðinni í heimsókn síðan Rakel Rós fæddist að fara nú að láta sjá sig en daman er orðin 3ja mánaða
Okkur finnst svo gaman að fá gesti. Annars er allt í fína hjá okkur. Fullt af fólki kom síðasta laugardag í heimsókn þegar Unnar átti afmæli og lét húsmóðirin ekki á sér standa og var nóg til af kræsingum. Ummmm en það styttist í næsta nammidag. Það gengur svona hægt og rólega í "heilsuátakinu" mínu sem hófst í janúar. En ég hugsa bara til hughreystingar....kemst þótt hægt fari. Ég óþolinmóða manneskjan og allt á að gerast í gær þarf að láta það víkja fyrir skynsemi !!! Svo ég set bara markið á sumarið að vera komin í flott form. Hef ekki verið nógu dugleg að fara út að labba síðustu daga enda frekar leiðinlegt að labba með snjó ruðninga út um allt :S En þetta lagast vonandi í næstu viku þegar snjónum verður búið að rigna niður. Þá getur maður aftur farið að arka með "rollsinn" (silver crossinn)
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
PET
ný könnun
Mitt sumarfrí...ef svo má kalla fer í að ferðast innanlands en fyrst að klára að laga húsið mitt að utan og garðinn. Það er alltaf eftir.
Og einnig setti ég nýtt inn í teljarann en núna telur niður í brúðkaupið hjá Erlu Ósk og Wissler en það veðrur haldið 10.10 í Minneapolis. Hlakka bara til og vonandi verða "Hundleiðir" aka Flugleiðir með tilboð á flugi þangað á þeim tíma !! ....maður m´láta sig dreyma :D
Annars er bara lítið að frétta af okkur annað en að allir eru hressir og kátir. Við fórum upp í Húsafell í bústað um helgina og var það voðalega notalegt. Hrikalega flott veður, frost, stilluveður og stjörubjart. Því var þetta tilvalið verðu til að leika sér á snjósleðunum og fjórhjólinu. En Rabbi og Magga systkini Unnars voru þarna líka og krakkarnir hans Rabba því hann varð fimmtugur í gær.
Jæja þar sem eldri börnin eru farin í skólann ætla ég að henda mér aftur upp í rúm og kúra með þeirri yngstu. ....enga öfund !!!
PET
Nýtt blogg
En ég er sko ekki hætt að blogga hérna Gunna mín...vildi bara að einhver kommentaði fyrst þar sem ég fór nú eiginlega inn á facebook þar sem fólk virtist bara vera hætt að blogga og skoða bloggsíður yfir höfuð. Svo ég er ennþá með þessa síðu og líka síðuna á barnalandi. Ætla einmitt að reyna að setja inn nýjar myndir í dag. Er að hlaða myndavélina.

En sonur minn koma mér rækilega á óvart í fyrrakvöld en hann fékk að fara á rútinn með frænku sinni og kom stuttklipptur heim....og ég ætla ekki að segja ykkur hvað hann er miklu flottari þannig og hvað hann gerði mömmu sína glaða :D En ég var hætt að nenna að röfla í honum um klippingu (þótt ekki væri nema snyrta það) og hvað þá að fá hann til að greiða sér. Og hann fór ekki í neina jólaklippingu í ár því það mátti sko ekkert klippa af. Finnst ykkur hann ekki flottur núna ??
Annars er daman mín hún Rakel Rós farin að sofa nánast alla nóttina í einum beit. Er að sofna svona um 11-miðnættir og er farin að sofa í svona 7-8 tíma í beit. Þá drekkur hún og leggst aftur og sofnar og sefur í svona 3 tíma í viðbót. Svo þetta er bara nánast eins og í bókinni.
Langaði svo að óska Rósu Ragnars og Val til hamingju með drenginn sinn en hún átti í nótt. Ekki voru komnar neinar mælingar þegar ég fékk sms frá henni kl 5:21.
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...er að hugsa um að leggja mig aðeins ;)
PET
Bóndadagur í dag

við mæðgur...sko ég og Una Rós ( Rakel Rós fékk að vera súkkulaði núna og fékk að sofa) vöknuðum við vekjaraklukkuna kl 6:00 til að gera leyndarmálið okkar...en það var að elda egg og beikon í morgunmat fyrir bóndana (bændurna) okkar tvo. Og því fóru þeir saddir og sækir til vinnu og skóla. Finnst okkur Unu Rós svo gaman að koma þeim svona á óvart. Una Rós fór og vakti pabba sinn þegar klukkan var 6:20 og ætlaði hann að fá hana upp í rúm að sofa því klukkan væri svo lítið !!! Var ekki að fatta hvað við stelpurnar vorum að bralla.
En ég segi bara gleðilegan bónadag til allra karlmanna í landinu.
af hverju verður maður að skrifa eitthvað hérna í hausinn ???
Ég má samt varla fara út úr innkeyrslunni ekki með hana með mér þá gerir hún pabba sínum lífið leitt með öskrum !!! Skrapp á fund um daginn kl 10 um kvöldið og var í einn og hálfan tíma. Hún var "góð" í hálftíma og svo þegar ég kom hætti hún alveg !!! Hvaða stælar eru það :S En þetta litla skott er svo dugleg að drekka og er að dafna mjög vel. Höfum við verið duglegar að fara út að labbba með vagninn og steinsefur hún á meðan.
Núna er farið að birta fyrr af degi svo sumarið er ekki langt undan. Erum við að fara láta sérsauma fortjald á fellihýsið okkar þar sem meira dót fylgir okkur næsta sumar með Rakel Rós eins og kerran og svoleiðis. Og eigum við að koma með vagninn í janúar og ætla þeir bara að sauma það þannig að það passi alveg pottþétt. Hlakka ég til að sjá útkomuna á því. Og ég hlakka ennþá meira til að komasr í ferðalag.
Áramótaheitin mín ganga vel, allavega hingað til. Setti mér markmið fram í lok janúar til að byrja með. Auðveldara að hugsa styttra í einu.
Ég var með vinkonuhitting hjá mér í janúar og er alltaf svo gaman þegar við hittumst. Sátum við hérna heima að rifja upp gamla tíma langt fram eftir nóttu. Vonandi getum við farið að hittast oftar eftir því sem fleiri týnast heim frá útlöndum :D Og það eru bara 5 dagar í að Erla flytji loksins heim frá Canada. Búin að bíða í mörg ár eftir því !!! En þolinmæðin þrautir vinnur allar ;)
Stjórn GRV er núna á fullu að undirbúa sumarið yrir stelpurnar. Nóg að gera þar sem Úrvalsdeildin bíður. Margt að hugsa um og skipuleggja en þetta hefst allt. Og ef einhver sem les þetta blogg hefur áhuga á að leggja okkur einhvern lið með vinnu við mat eftir leik, te og rist fyrir leik, vera á markatöflunni eða bara eitthvað sem til fellur þá má hafa samband við mig. Við þiggjum alla hjálp. Koma kannski í einn leik og hjálpa. Mér finnst þetta svo gaman þegar maður er ekki að spila sjálfur en er samt að vesenast í kringum þetta.
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra. En það er mun skemmtilegra að skrifa eitthvað ef einhver commentar ;)
PET sem ætlar að fara að klæða sig.
jæja...
Við hérna á Hraunbrautinni höfum haft það alltof gott. Sitjum núna í súpunni með aukakíló, sykursjokk og reyktan maga !!! En þá er bara að taka á því og fara að huga að matarræðinu og fara að hreyfa á sér rass****. Við höfum verið dugleg að fara út að labba með dömuna í vagninum. Og henni líður svakalega vel þar.
Erum búin að endurheimta húsbóndann heim sem brá sér á Grundarfjörð að breyta rækjuverksmiðjunni þar. Fór hann 2. janúar og kom heim í gærkvöldi. Það er nú alltaf gott að fá smá tíma útaf fyrir sig en það er líka alltaf gott að fá kallinn aftur heim
En Rakel Rós fannst svolítið skrýtið að heyra í hrotunum aftur þegar hún vaknaði í nótt til að drekka og stoppaði og horfði út í loftið !!! Bara fyndið fannst mér. hahaEn vá er að hlusta á þá í útvarpinu að reikna ef þú hættir að reykja og einhverja x vexti þá áttu eftir 10 ár 3,8 milljónir !!! Vá þetta eru skuggalegar tölur. Verst að maður reykir ekki og því get ég ekki hætt að reykja og lagt þann pening til hliðar !! .....nei segi bara svona. En þvílíkir peningar. Og ekki versnuðu þær þegar þeir fóru ennþá lengra að reikna.
En um áramót fer ég einhvern veginn alltaf í þann gír að endurmeta líf mitt...ef svo má að orði komast. Reyndar geri ég það oftar en það og hugsa hvað maður getur bætt. Batnandi manni er best að lifa !! Og er ég búin að setja mér nokkur markmið fyrir komandi ár og vonandi næ ég að efna þau. Er það sko ekki bara að missa einhver kíló....heldur líka margt annað. Alltaf má gera betur. En ég ætla að halda þeim markmiðum bara fyrir mig, svo ekki reyna einu sinni að ná því upp úr mér.
Svo svona í lokin þá rakst ég á þetta á netinu og fannst þetta líka alveg drep fyndið !!! http://www.xaboom.com/supermodel-takes-hard-fall-funny-video.php Ef ég hefði verið þessi kona hefði ég þegar bakvið var komið farið úr skónum og haldið áfram göngunni heim á leið !!! shit greyjið konan :S En ég hló upphátt við að horfa á þetta !!!
Þangað til næst
PET
p.s. er að fara að setja inn myndir á barnaland www.ou.barnaland.is
jóla, jóla, jóla....jóla, jóla, jól
Ég vil byrja á því að
ÓSKA YKKUR ÖLLUM GLEÐILEGRA JÓLA OG VONANDI HAFIÐ ÞIÐ HAFT ÞAÐ GOTT UM HÁTÍÐIRNAR.
Ég og mín fjölskylda höfum allavega haft það mjög gott. Ekkert stress og engin læti...nema þá helst í dóttur minni þeirri eldri en ef hún væri bílvél væri hún löngu úrbrædd !!! En hún var á 8000 snúningum þorláksmessuna seinni partinn og svo ekki sé talað um aðfangadag. Við leyfðum þeim eldri bara að vesenast á þorláksmessu því ég vissi að það þýddi ekkert að setja þau upp í rúm fyrr en þau yrðu þreytt. Fóru þau í jólasturtuna og horfðu á sjónvarpið og fleira og fóru þau ekki að sofa fyrr en um miðnætti...og var litla "dýrið" samt vaknað um kl 8 til að horfa á skrípó !!! En hún náði nú aðeins að hvíla sig í bílnum hjá pabba sínum því þau skruppu í Sandgerði á aðfangadag með pakka og bónuðu bílinn. Ekki minkaði svo spenningurinn þegar líða tók á daginn. Og borðaði hún slatta af súpu en svo var henni svo illt í maganum að hún borðaði ekki mikið kjöt. En svo lagaðist magaverkurinn eftir að pakkarnir voru búnir að líta dagsins ljós !!! En þá kom spennustig númer 2. Þá var það spenningurinn að föndra úr föndurkassanum, prófa litakassann, mála brats myndirnar og fleira. Og lét hún keppnina sem vind um eyru þjóta sem við settum upp en hún var svohljóðandi: KEPPNI UM HVER SEFUR LENGST !!!! Og auðvitað var mín Una Rós vöknuð um kl 9 því hana hlakkaði svo til að fara að sauma ...hehehe. Bara fyndin.
En við höfum haft það mjög gott. Tengdó voru hjá okkur á aðfangadag (eins og þau hafa gert síðustu 7 ár en við vorum að reyna að telja þetta í gærkvöldi) Svo komu mamma og pabbi í heimsókn um kvöldið. Svo í morgunvorum við uppi í rúmi til kl að ganga 4 en þá drössluðumst við fram úr og kíktum á systur mína og fjölskyldu. Þar var kökusneiðum rennt niður og þaðan beint haldið í jólaboð hjá ömmu í blokkinni. Þar sátum við að spjalla fram á kvöld. Voðalega gaman að hittast svona fjölskyldan.
Ég fékk voðalega fína gönguskó frá manninum mínum í jólagjöf svo ég ætti að geta farið að arka um bæinn. Svo ætlum við núna fljótlega að fara og kaupa okkur góða svona útivistargalla. Svona öndunardót. Ætlum að fara að vera duglegri að ganga eins og t.d. í ferðalögunum. Einnig erum við búin að panta sérsaumað fortjald á fellihýsið en það munar um það þegar maður þarf að ferðast með vagn næsta sumar. Og ætla þeir hjá Tjaldborg að sauma flott fortjald fyrir okkur alveg eftir okkar höfði
Við hlægjum sko bara framan í kreppuna hahahaha.
En við þökkum öllum þeim sem gáfu okkur og börnunum jólapakka.
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta sinnið
Gangið hægt um gleðinnar dyr !!
PET
vika til jóla
Þá eru að koma jól. Svo jólalegt úti en það kyngdi niður "ekta" jólasnjó í gær eða sko hann flaug hægt og rólega til jarðar. Logn og gott veður. En deginum í gær eyddi ég í bakstur. Voru bakaðar ilmandi súkkulaðibitakökur, marengstoppar og spesíur. En kókoskökurnar verða að bíða betri tíma þar sem maður þarf nokkur "leikhlé" með barn á brjósti. En fleira gerðist í gær.....dóttir mín ákvað að taka nýju snuddunni sem ég fór og keypti í apótekinu 


Er samt svolítill klaufi ennþá að halda henni lengi uppi í sér. En þetta kemur allt og því er hún núna í æfingabúðum !!!
Er ég núna búin að pakka in öllum gjöfunum en 2 eiga eftir að klárast alveg og því verður þeim pakkað síðar. Ég ætlaði að föndra jólakortin í ár en svo keypti ég af krabbameinssjúkum börnum kort og einnig pantaði ég að utan nokkur kort til að prófa og koma þau mjög vel út. En hin sem ég ætlaði að föndra efast ég um að fari þannig út
en ég er svo hugmyndasnauð varðandi kortin í ár a ég held að þessi "brjóstaþoka" sem sumir tala um sé yfir mér núna !!! Þannig að ég set þau markmið að á næstu jólum verði kortin bara ennþá flottari !!!
En ég var að skrifa inn færslu á barnaland og einnig að setja inn myndir. Svo check it out ;)
Petra Rós sem er í jólaskapi.
yes
Haldið þið að við rósirnar höfum ekki komist út að labba með vagninn í gær og var það okkur til mikillar gleði þótt úti væri grenjandi rigning. En það var 7 stiga hiti og logn þegar við lögðum af stað en var farið að hvessa þegar við löbbuðum heim á leið. Sóttum við Unu Rós í skólann og kíktum m.a. í vinnuna til mömmu og Unnars á gönguleiðinni. Mikið var nú gott að komast aðeins út og ég tala nú ekki um í smá hreyfingu. Maður er algjör sulta eftir alla þessa inniveru og í þokkabót líkaminn ekki alveg búinn að ná sér eftir fæðinguna þegar maður hreyfir sig lítið í frostinu. En eins og áður sagði erum við mjög þaklátar því að hafa komist út. Daman svaf allan tímann og hafði það bara gott í Silver Crossinum í rigninguni. En spurning hvort þetta virki að hugsa svona eins og pollýanna. Ég sagði nefnilega við mömmu í fyrradag að ég væri farin að hugsa þannig að ég kæmist bara út að labba í maí en allt fyrr en það væri bara bónus !!! og vollah .... daginn eftir kom ákjósanlegt veður til að fara út í göngu.
Hlakka svo til laugardagsins en þá er jólasaumaklúbburinn hjá okkur og er búið að boða okkur í 3ja rétta máltíð og flottheit....***slef*** Og í hádegismat á laugardaginn þá förum við í afmælis/jólaboð í Sandgerði til tengdó en þau eru farin að leigja sal og halda þar fjölskyldudag í kringum 10. desember þar sem tengdapabbi á afmæli þá og varð hann í gær 75 ára kallinn. Svo þetta verður fyrsta langferðin hjá Rakel Rós frá fæðingu....alla leið í Sandgerði.
Verkefni þessara daga núna hjá mér er að föndra jólakortin, skrifa í þau og klára jólagjafirnar. Núna notar maður bara tæknina við síðustu jólagjafirnar. Verslar gjafirna rá netinu og sækir bara á pósthúsið Mjög svo hentugt og ekkert vesen. Á meðan sefur svo bara daman í vöggunni og ekkert stress. Um að gera að nýta sér tæknina.
Við fórum líka í vigtun í gærmorgun og er daman að dafna alveg eins og hún á að gera. Enda vissi ég það svo sem...enda flottasta stúlkan í bænum ( og auðvitað líka Una Rós !!)
Jæja ætla að skríða aftur upp í rúm fyrst ég er búin að koma börnunum í skólann. Ennþá nótt hjá okkur til svona rúmlega 10 :D
PET
