jæja...
08. janúar 2009 klukkan 16:54
...kominn tími á að setja niður stafi á blað þar sem síðast var skrifað á síðasta ári !!!
Við hérna á Hraunbrautinni höfum haft það alltof gott. Sitjum núna í súpunni með aukakíló, sykursjokk og reyktan maga !!! En þá er bara að taka á því og fara að huga að matarræðinu og fara að hreyfa á sér rass****. Við höfum verið dugleg að fara út að labba með dömuna í vagninum. Og henni líður svakalega vel þar.
Erum búin að endurheimta húsbóndann heim sem brá sér á Grundarfjörð að breyta rækjuverksmiðjunni þar. Fór hann 2. janúar og kom heim í gærkvöldi. Það er nú alltaf gott að fá smá tíma útaf fyrir sig en það er líka alltaf gott að fá kallinn aftur heim
En Rakel Rós fannst svolítið skrýtið að heyra í hrotunum aftur þegar hún vaknaði í nótt til að drekka og stoppaði og horfði út í loftið !!! Bara fyndið fannst mér. haha
En vá er að hlusta á þá í útvarpinu að reikna ef þú hættir að reykja og einhverja x vexti þá áttu eftir 10 ár 3,8 milljónir !!! Vá þetta eru skuggalegar tölur. Verst að maður reykir ekki og því get ég ekki hætt að reykja og lagt þann pening til hliðar !! .....nei segi bara svona. En þvílíkir peningar. Og ekki versnuðu þær þegar þeir fóru ennþá lengra að reikna.
En um áramót fer ég einhvern veginn alltaf í þann gír að endurmeta líf mitt...ef svo má að orði komast. Reyndar geri ég það oftar en það og hugsa hvað maður getur bætt. Batnandi manni er best að lifa !! Og er ég búin að setja mér nokkur markmið fyrir komandi ár og vonandi næ ég að efna þau. Er það sko ekki bara að missa einhver kíló....heldur líka margt annað. Alltaf má gera betur. En ég ætla að halda þeim markmiðum bara fyrir mig, svo ekki reyna einu sinni að ná því upp úr mér.
Svo svona í lokin þá rakst ég á þetta á netinu og fannst þetta líka alveg drep fyndið !!! http://www.xaboom.com/supermodel-takes-hard-fall-funny-video.php Ef ég hefði verið þessi kona hefði ég þegar bakvið var komið farið úr skónum og haldið áfram göngunni heim á leið !!! shit greyjið konan :S En ég hló upphátt við að horfa á þetta !!!
Þangað til næst
PET
p.s. er að fara að setja inn myndir á barnaland www.ou.barnaland.is
Við hérna á Hraunbrautinni höfum haft það alltof gott. Sitjum núna í súpunni með aukakíló, sykursjokk og reyktan maga !!! En þá er bara að taka á því og fara að huga að matarræðinu og fara að hreyfa á sér rass****. Við höfum verið dugleg að fara út að labba með dömuna í vagninum. Og henni líður svakalega vel þar.
Erum búin að endurheimta húsbóndann heim sem brá sér á Grundarfjörð að breyta rækjuverksmiðjunni þar. Fór hann 2. janúar og kom heim í gærkvöldi. Það er nú alltaf gott að fá smá tíma útaf fyrir sig en það er líka alltaf gott að fá kallinn aftur heim
En Rakel Rós fannst svolítið skrýtið að heyra í hrotunum aftur þegar hún vaknaði í nótt til að drekka og stoppaði og horfði út í loftið !!! Bara fyndið fannst mér. hahaEn vá er að hlusta á þá í útvarpinu að reikna ef þú hættir að reykja og einhverja x vexti þá áttu eftir 10 ár 3,8 milljónir !!! Vá þetta eru skuggalegar tölur. Verst að maður reykir ekki og því get ég ekki hætt að reykja og lagt þann pening til hliðar !! .....nei segi bara svona. En þvílíkir peningar. Og ekki versnuðu þær þegar þeir fóru ennþá lengra að reikna.
En um áramót fer ég einhvern veginn alltaf í þann gír að endurmeta líf mitt...ef svo má að orði komast. Reyndar geri ég það oftar en það og hugsa hvað maður getur bætt. Batnandi manni er best að lifa !! Og er ég búin að setja mér nokkur markmið fyrir komandi ár og vonandi næ ég að efna þau. Er það sko ekki bara að missa einhver kíló....heldur líka margt annað. Alltaf má gera betur. En ég ætla að halda þeim markmiðum bara fyrir mig, svo ekki reyna einu sinni að ná því upp úr mér.
Svo svona í lokin þá rakst ég á þetta á netinu og fannst þetta líka alveg drep fyndið !!! http://www.xaboom.com/supermodel-takes-hard-fall-funny-video.php Ef ég hefði verið þessi kona hefði ég þegar bakvið var komið farið úr skónum og haldið áfram göngunni heim á leið !!! shit greyjið konan :S En ég hló upphátt við að horfa á þetta !!!
Þangað til næst
PET
p.s. er að fara að setja inn myndir á barnaland www.ou.barnaland.is

Kveðja Heiða....