happ í hendi......
Svo þið sem nenntuð ekki að lesa þá er þetta í stuttu máli:
Happadrætti GRV stúlkna
heimasíða : www.happagrv.blog.is
Verð: 1.000 kr miðinn sem fer í ferðasjóð .
Bestu kveðjur
sendi ykkur öllum happastrauma ;)
PET
svekkt dauđans
En nóg um það. Vonandi er vorið núna að koma. Reyndar hef ég svo oft sagt þetta núna upp á síðkastið en alltaf daginn eftir hefur verið kominn snjór.....svo ef það veðrur allt hvítt á morgun þá er ég hætt að búast við vorinu ...hahaha.
Allavega voru krakkarnir úti á palli í dag í þvílíkri blíðu að blása sápukúlur og mér fannst bara svo vorlegt þó fullt af snjó væri á steinunum fyrir utan pallinn !!! En það veitir bara á gott sumar er það ekki ?? Vona það.
En ég setti nýja mynd á forsíðuna. Ein gömul í viðbót :D
Jæja ætla að fara að koma mér í kalda sturtu og ná mér niður eftir leikinn :S
PET
sjónvarp og netiđ
En ég verð að byrja á því að mota mig aðeins á "mínum" mönnum sen Liverpool tók Arsenal og skellti þeim 4-2 í kvöld og fannst mér það ekki leiðinlegt
En núna ætla ég að tjá mig um sjónvarp og netið það sem ég hef lesið ar eða horft á undan farin kvöld. Þar sem Unnar hefur lítið verið heima undan farið hef ég bara verið að þvælast á netinu og glápa á sjónvarpið. Í kvöld var ég að horfa á Kompás og aðgengi fatlaðar. Finnst mér þetta sorglegt fyrir þetta fólk að það komist hvorki aftur á bak eða áfram og held ég að eins og einn sagði í þessum þætti að þetta er kannski meira hugsunarleysi hjá okkur hinum sem erum svo heppin að geta farið allt gangadi frekar en kannski hirðuleysi. En ég þoli alls ekki þegar alheilbrigt fólk leggur í bílastæði ætluð fötluðum. Þetta eigum við bara ekki að gera. Ég tók eftir þessu úti í Ameríku í haust að enginn leggur í stæði fatlaða nema þeir sem hafa rétt á því enda eru sektir mjög háar fyrir að gera það. Vorum við Unnar að hringsóla marga hringi á bílastæðum fyrir utan eitt mollið og engin stæði laus.....en enginn lagði í P-stæðin. Og fannst mér það algjör snilld. Svo mitt heilræði er.....setjum okkur í spor þeirra sem þurfa á þessum stæðum að halda. Ekki hugsa bar aum einhver nokkur skref sem skilja að stæðin sem við eigum að leggja í og P stæðin.
Svo var ég að sjá á visir.is að það hefði annað banaslys orðið við það að menn eru að laga bíla sem hrynja ofan á þá. Hræðilegt slys og annað svona var fyrir nokkrum dögum. Sýnir að það þarf að fara með öllu að gát.
En slysin gera víst ekki boð á undan sér svo verum góð hvert við annað.
Segir PET sem horfir út um gluggann á snjóinn sem fellur til jarðar .!!!! Ætlar vorið aldrei að koma ??
afmćlisdagurinn búinn og fermingarafmćli í dag

mig langar að byrja á að þakka öllum sem voru svo sætar/sætir að muna eftir afmælinu mínu og sendu mér kveðju hvort sem það var í smsi, hérna á síðunni eða með kommenti á afmælisbloggið mitt á fabio. http://fabio.bloggar.is/blogg/346792/ Alltaf gaman þegar einhver man eftir afmælinu manns.
Og auðvitað klikkaði ekki húsmóðirin á veitingum í tilefni dagsins og fóru allir saddir út sem ráku nefið inn ;) Og voru gestir alveg fram yfir miðnætti.
En í dag eru 14 ár frá því að ég fermdist. Ég held ég þurfi samt að telja aftur því mér finnst bara þessi árafjöldi engan veginn í samræmi við minnið mitt !!! En hvað maður var flottur í heimasaumaða græna kjólnum sem Hjödda saumaði og vorum við vinkonurnar Erla Ósk í eins kjólum bara sitt hvorum litnum. Hangir þessi kjóll ennþá sléttur í plasti inni í skáp hjá mér....en ég ætla nú ekki að fara mæta í honum á næsta ball þar sem hann hefur hlaupið svo ískyggilega í skápnum að hann passar held ég bara á annað lærið á mér í dag
ferlegur þessi raki í þessum nýju fataskápum !!! hehe
En margar af fermingargjöfunum mínum lifa ennþá fínu lífi eins og tjaldið mitt, svefnpokinn, skartgripaskrínið, og skartgripirnir. Einnig er Ólafur Þór með sjónvarpið sem ég keypti mér fyrir fermingarpeninginn.
En um helgina er ég að fara í fermingarveislu til Möggu systur Unnars en hún er að ferma 7unda og jafnframt síðasta barnið sitt. Svo hún veit hvað hún er að tala um þegar verið er að ræða um fermingarveislur. Ætla að hjálpa þeim að skreyta salinn á laugardaginn og skrifa á ísterturnar. Svo er törnin búin á sunnudaginn þegar veislan er búinn og er ég þá hálf fegin að geta smá kannski andað. En svona er þetta nú stundum....og oft hjá mér.
En svo er annað. Ef þið eigið einhver húsgögn, punt, gardínur, eldhúsáhöld, stofuborð, stóla, náttborð eða eitthvað sem þið eruð að láta frá ykkur eða henda.....viljið þið þá ekki vera svo góð að láta mig fá það þar sem við í vinnunni erum að fylla íbúð handa útlendingum sem eru að koma að vinna og taka við öllu. Hafið mig þá endilega í huga. Sækjum dótið til ykkar.
Kveðja
Petra Rós semr er 28 ára +1 dags gömul.
hugsanir húsmóđurinnar og mömmunnar
Á árinu 2007 dvöldu 114. börn í leikskólanum Meðaltal dvalastunda var 790. stundir.
60 til 65 börn voru í vistun 8.tíma og lengur.
Þrjátíu börn voru 6-6,5 tíma og
tæplega 20 í 4-5 tíma vistun.
S.s. meira en helmingur barnanna sem eru á leikskólanum eru að "vinna fullan vinnudag eða lengur" á leikskólanum og finnst mér það sem móður bara eiginlega sorglegt.
Ekki það að ég sé að segja að leikskólar séu eitthvað slæmir heldur er þetta ekkert smá langur vinnudagur hjá litlum börnum. Og vitandi það að börn sem eru ný komin inn á leikskólann 18 mánaða eru á leikskólanum frá 7:45 - 17:15.
Höfum við rætt þetta í saumaklúbb fram og til baka og þar eru nú nokkrir leikskólastarfsmenn sem eru alveg á því að það eigi bara að setja hámarkstíma á þessi litlu grey.
Ég allavega hugsa þannig að ég fórna bara mínum starfsframa....eða fórna er kannski ekki rétta orðið. Vinn bara það sem hentar mínum börnum og skólatíma þeirra. Held það sé mikilvægt að vera til staðar og vona að ég fái það til baka seinna að hafa gefið börnunum mínum tíma. Finn ég það allavega á mínu heimili hvað börnin breytast ef það kemur upp þannig að ég er upptekin einhverja daga og ekki til staðar. Finn ég alveg mun á þeim.
Æi ég verð örugglega skotin af þeim sem verða að vinna allan liðlangann daginn til að ná endum saman. En ég held að við höfum alltaf val. Þegar við byrjaðum að búa áttum við Óla og hann var rúmlega 1 árs. Við áttum alls ekki mikinn pening en þurftum að vera mjög dugleg að safna upp í útborgun eins og kerfið virkaði þá fékk maður 1 ár til að borga útborgun. Þetta ár lifðum við ágætislífi þó að engin blöð væru keypt (þá voru nú engin fríblöð og ekki netið eins og það er í dag), bara RÚV, ekkert Stöð2, enginn skyndibiti eða óþarfa ferðir í sjoppuna. Nesti smurt og þar fram eftir götunni. Byrjuðum bara með gefins húsgögnum og það sem við áttum fyrir. Ég vann samt bara 5,5 tíma á dag því hinn tímann var ég að sinna barninu. Þetta hafðist allt en bara með sparsemi og því segi ég að við höfum alltaf val. Þurfum við að vinna allan daginn frá börnunum til að borga af nýja bílnum, fellihýsinu og nýja leðursófasettinu eða er það af því við þurfum virkilega á því að halda ?? Ég bara spyr.
Mín skoðun er sú að þetta eru ekki mörg ár sem maður þarf að eyða með börnunum sínum til að koma þeim þokkalega á legg og þeim er ég alveg til í að fórna fyrir flott heilsdagsstarf einhvers staðar með meiri laun. Reyndar er ég bara í fínu starfi í dag og vinn hálfan daginn og er bara sátt við lífið. En það eru örugglega til milljón skoðanir á þessum málum.
En ég segi það er bara eins með börnin og hundana....ef maður hefur ekki tíma fyrir þessi grey þá á maður bara að sleppa því að eiga þau !!!
og hana nú !
PET sem bloggar síðasta daginn sem hún er 27 ára !!!
Fćrsla á jákvćđu nótunum
Núna er dóttir mín farin að telja niður hvað hún á eftir að vera marga mánuði á leikskólanum og hvenær skólinn byrjar. Tíminn getur liðið svo hægt þegar maður er að bíða svona. En hún á sko eftir að spjara sig þessi unga dama. Hún bíður spennt eftir barninu hennar frænku og er sko alveg með það á hreinu að það á að koma 16. maí. Enda er hún að fá þar svona nokkurn veginn "skásystkini" híhíhí.
En ég fór í Reykjavík á þriðjudaginn og keypti mér eitt stykki saumavél. Og er voðalega ánægð með kaupin. Er búin að vera að gera við saumsprettur og setja bætur á föt og allt. Er búin að komast að því að þetta tæki er eins nauðsynlegt í búið eins og hrærivél ;)
En núna þarf ég að sækja Unu Rós á fótboltaæfingu og koma henni í sundtíma. Nóg að gera hjá minni.
hugsun
En ég á fallegar minningar um Hjalta bróður minn sem lést aðeins 19 ára í hræðilegu slysi. Margt kemur upp í hugann eins og þegar hann dreif mig út á náttfötunum þegar selur var kominn í höfnina og brunaði hann niður á bryggju til að sína litlu systur selinn. Fórum við í Saabnum hans gráa.
Ég missti vin minn Svanna þegar ég var aðeins 16 ára. Hann lést í bílslysi og geymi ég margar góðar minningar um hann í hjarta mínu. M.a. þegar töffarinn að vestan var að flytja til bæjarins. Og fékk hann alla þá athygli sem hann vildi !!! Féll strax inn í vinahópinn og varð svo brátt kærstinn hennar Gunnu vinkonu minnar. Var hann uppátækjasamur og skemmtilegur strákur sem aldrei kom heim úr fríinu á Þingeyri. Þetta var í september árið 1996. Biðum við í nokkra daga í von um að hann myndi nú vakna úr dáinu sem ekki varð. En Sr. Jóna Kristin hugsaði vel um okkur unglingana sem vorum alveg í sjokki eftir þetta áfall.
Hafliði dó daginn eftir að við fórum stór vinahópur saman á ball á Hótel Ísland með Todmobile. Lentum við á miklu spjalli og ætlaði ég alls ekki að trúa því daginn eftir þegar ég var vakin með þeim fréttum að Hafliði væri látinn. Svona er nú lífið stundum óskiljanlegt og stutt á milli lífs og dauða. Þetta var árið 1997. Alltaf var gaman að vera í kringum þá vinina afliða og Alla. Mikið hlegið og mikið gaman.
Afi Hjalti dó svo úr krabbameini og var það mjög erfitt þó hann hafi verið orðinn gamall og allt það þá var þetta alls ekki sanngjarnt og held ég að maður sé aldrei tilbúinn í svona fréttir. Afi var mér svakalega góður. Alltaf var gaman að fara með þeim ömmu í sumarbústaðinn og ekki stóð á því að maður gat dröslast með honum hvert sem var aldrei fékk hann leið á spurningunum sem hafa örugglega verið þónokkrar....enda er ég mjög fróðleiksfús :D Hverra manna ert þú piltur minn.....og borðaðu vel þegar þú borðar frítt.....þessi spakmæli eiga eftir að lifa. Hann var húmoristi hann afi. Kannski ég hafi þrjóskuna frá honum ?? hmm
Amma Ragnheiður er líka komin til englanna eins og maður segir. Veit ég að hún passar okkur hin sem erum hérna megin eins og hún var vön að gera. Alltaf var jafn gaman að koma í sveitina og hjálpa ömmu og afa og held ég að það hafi varla liðið sumar sem ég fór ekki til þeirra í heimsókn. Það var svo gaman að sjá hvað amma og afi voru alltaf sátt við hvort annað, samhent og alltaf svo hamingjusöm. Svo fallegur garðurinn hennar og öll blómin. Það var sko hugsað vel um þau eins og okkur fjölskylduna. Og þótt amma væri ekkert mikið fyrir að fara út fyrir bæjarhlaðið þá var hún sko með landafræðina á hreinu og vissi alltaf hvar maður var í heiminum með því að nefna staðinn sem maður var á.
Afi Einar er líka látinn og þaðan fékk ég fótboltahæfileikana en kallinn var í Víkingi og gerði það gott á árum áður. En ég þekkti hann samt frekar lítið og dó hann þegar ég hef verið svona ca 12 ára.
Gunnhildur vinkona dó í hræðilegu bílslysi á Grindavíkurveginum þegar við vorum 18 ára. Var það ótrúlegt högg og erfitt að horfast í augu við. Við gátum sko sprellað í vinnunni og leiddist okkur alls ekki. Vorum við flottar saman á vakt hjá Flugleiðum. Og því var stórt skarð höggvið í hópinn við fráfall hennar.
Diddi frændi dó svo fyrir stuttu og var það erfitt að maður í hans formi skuli bara detta iður einn daginn. En þetta sannar mína kenningu um að ég held að það sé búið að skrifa byrjunina og endann á lífsbókina okkar þegar við fæðumst. Við eigum einhvern endapunkt og svo er bara spurning hvar maður er á þeim tíma.
Svo hef ég misst marga sem hafa komið nálægt minni æsku á einn eða annan hátt eins og Þóru frænku, Völu hans Óla, Möggu hans Gúnda, Röggu hans Sævars og fleiri.
Og held ég að ég eigi marga engla á himninum sem passa mig ig mína fjölskyldu. Allavega vona ég það og trúi að við eigum eitthvað gott fyrir höndum þegar þessu lífi er lokið.
En ég ætla að enda þetta í dag og vonandi þarf ég ekki að hræðast það að missa einhvern nákominn.
Kveðja
Petra Rós heimsspekingur sem æltar að koma með upplífgandi pistil næst !!!
páskafrí.

jæja þá er páskafríið gengið í garð og sumarfríið svo næsta á dagskránni. Get ekki beðið eftir að sumarið fari nú loksins að láta sjá sig þar sem veturinn hefur nú verið eins og hann hefur verið. Fellihýsið mitt bíður bara eftir að fá að dröslast á eftir bílnum okkar í ferðalag. En þetta ætlar Una Rós að gera í sumar: fara í sund, fara í ferðalag með sundfötin sín, og fara til útlanda og í sund þar !!!!
En núna þessa dagana erum við mægður bara að hafa það gott. Unnar búinn að vesenast svo mikið í bílnum sínum að við sjáum hann varla nema rétt á morgnana og Ólafur Þór var snöggur að skjótast í Sandgerði til ömmu og afa þegar páskafríið byrjaði.
Í gær bauð ég fjölskyldunni í mat þar sem Nonni bróðir er fyrir sunnan. Mamma og pabbi, Ragnheiður og fjölskylda og við borðuðum dýrindis læri með öllu sem ég skvetti bara fram úr erminni ALEIN
Ætli maður verði svo ekki að klára skattaskýrsluna í páskafríinu svo það sé búið. Ætlaði að rumpa henni af um daignn en þá fattaði ég allar bíla, mótorhjóla og fellihýsa breytingarna á árinu og því lokaði ég bara framtalinu og ákvað að nota málsháttinn.....það sem þú getur gert á morgun gerir þú ekki í dag
kreppa hvađ ????
Er þetta KREPPA eins og maður lærði 6 ára í búningsklefanum í gömlu sundlauginni...beyjga, KREPPA, sundur saman ??? Nei ég bara spyr ??
Sigli bara minn sjó á mínum hraða áfram sem hefur gengið ágætlega hingað til.
En önnur spurning til fréttastjóra : Heyrðu þú hefur gleymt að taka út fréttina um að bensínverð sé að hækka.....sama fréttin sögð dag eftir dag
Ný mynd komin á forsíðuna. Þessi er mjög skemmtileg mynd finnst mér. En á myndinni eru Rósa Ragnars, Gulli Eyjólfs, Erla Ósk, Inga Björg og ég. Bara gaman að þessari mynd.
Svo eru fermingarnar að byrja og förum við í 3 þetta árið svo vitað sé til. Í dag er svo árshátíðin hjá honum Óla mínum og er stórfjölskyldunni stefnt í skólann. Verður minn maður kynnir á árshátíðinni ásamt Ölmu Þöll og er minn búinn að vera duglegur að æfa sig.
En jæja best að fara að ganga frá þvotti....nóg að gera á stóru heimili.
PET
Allt ađ koma
Ég fór til læknis á þriðjudagsmorguninn og sagði læknirinn um leið og hann leit upp í mig: vááááá þú ert með stóra hálskirtla !!!! Og úrskurðaði hann að um svæsna streptokokkasýingu væri að ræða. Fékk ég lyf og er merkilegt hvað maður verður hress eftir fyrstu inntökuna. Enda farin að þekkja þennan sjúkdóm þar sem þeir kíkja reglulega á mig :S Ætla nú að fara að heyra í honum Friðrik vini mínum háls, nef og eyrnalækni og spyrja hvort ekki sé að verða kominn tími að henda þessum stóru hálskirtlum
Er því farin í vinnu aftur sem betur fer. Er sko ekki týpan til að hanga heima og liggja eins og skata með fullt af skrautskriftarverkefnum sem biðu. En það er allt komið í rétt horf núna.
En þið sem ekki vitið þá tek ég að mér alls konar skrautskrift. T.d. í gestabækur, biblíur, sálmabækur, kort og margt fleira. Svo kann ég að skrifa á kerti eins og fermingarkerti. Svo þið bara hóið í mig ef ykkur vantar
Núna er nóg að gera framundan. Erum að skipuleggja fund með (vonandi) öllum foreldrum grunnskólabarna í næstu viku, svo erum við á fullu að fjárafla fyrir fótboltaæfingaferðina og erum við með gæða klósettpappír og eldhúsrúllur til sölu á 2.000.- kall ef ykkur vantar
Þar sem það er svo gott veður ætlum við mægður að rölta út í búð.
þangað til næst....
PET
