Prófíll

  • Nafn: Petra Rós
  • Staður: Grindavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Skrifstofudama, bókari, launafulltrúi, tækniteiknari, skrautskrifari, listakona, mamma og margt fleira
  • Hjúskaparstaða: harðgift honum Unnari mínum.
  • Um mig: ég er ung Grindavíkurmær sem á 3 börn, Ólaf Þór fæddan 1998, Unu Rós fædda 2002 og Rakel Rós fædda 2008. Þetta eru mínar dýrmætustu eigur :D
  • Annað: ég spilaði fótbolta í 20 ár og það er erfitt að slíta sig frá því sporti og sit því í stjórn GRV og svo finnst mér gaman að föndra allskonar gersemar.

Auglýsing

Könnun

Hvernig ætlið þið að nota sumarfríið í ár ???

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Pressa, helgin ofl

04. febrúar 2008 klukkan 13:12
Jæja þá er lokaþátturinn af Pressu búinn og fær þessi þáttarröð alveg 6 stjörnur af 5 mögulegum. Vonandi verða bara fleiri svona þáttarraðir gerðar. Skil bara ekki hvar RÚV er í þessu samhengi með alla sýna peninga en nánast ekkert kemur frá þeim Óákveðinn 

Helgin var bara fín hjá mér. Var með vini í 3ja rétta máltíð á laugardagskvöldinu og sátum við langt fram á kvöld við að spjalla og hafa gaman.  S.s ég er byrjuð að efna það sem ég setti mér um áramótin að vera duglegri að bjóða fólki í mat og sýna mig og sjá aðra :D
Sunnudagurinn fór svo í að hafa það gott og afmælisveislu hjá Elfari Þór.

Dagurinn "minn" er í dag....bolludagurinn !!! Glottandi Er búin með minn bolluskammt í dag. Fékk 2 bollur með kaffinu. Gaman að eiga svona einn dag á dagatalinu híhí 

En var að spá í að setja inn mýja mynd í hausinn. Spurning hvaða mynd verður fyrir valinu ...hmmm

:D

30. janúar 2008 klukkan 22:51
Ég vildi bara segja ykkur að ég mætti sko í spinning í morgun kl 6 og svo fór ég líka á fótboltaæfingu í kvöld.....svo ég fæ 2 stjörnur í kladdann í dag. haha.

En ég er komin með nýja mynd á forsíðuna : En núna varð frekar skemmtileg mynd fyrir valinu :D

Ýmsir punktar.

29. janúar 2008 klukkan 22:06
* er að horfa á Kompás þar sem verið er að fjalla um mál Guðmundar í Byrginu. Vá hvað þessi maður vill ekki horfast í augu við raunveruleikann........í þvílíkri afneitun.

* voðalega er gott að vera stelpa ef maður þarf á hjálp að halda með eitthvað. Ef maður er voðalega kurteis þá eru allir karlmenn tilbúnir að hjálpa manni. T.d. þegar maður fer með bílinn í skoðun og eitthvað smotterí er að. Þá bara kippa þeir því í lag ;)

* Allir að muna að skafa vel af bílunum þegar snjóar. Lögreglan er farin að sekta þá sem ekki skafa nógu vel og þar fýkur 5.000 kall út í buskann. Sumir keyra líka rétt með saumnálsgat á framrúðunni.

* Kíkti á ömmu mína í dag og er hún alltaf jafn hress...ný orðin 86 ára.

* Spáið í því að ef manneskja pissar utan í vegg í miðborginni getur þú átt á hættu að verða sektaður um 5000 kall en ef hundur kúkar á miðjum Laugarveginum þá er ekkert gert ef eigandinn tekur "góssið" upp. Má ég kúka á gangstétt ef ég bara tek upp eftir mig ??? haha

* Er að fara mað vinnunni á hótel, út að borða og á Jesus Crist Superstar þann 23. febrúar n.k.

* Spaugstofumálið. Ég er sammála þeim sem sagði í útvarpinu í dag að af hvejru ætti að verða allt vitlaust þó gert sé grín að andlegri veiki. Búið að gera grín að t.d. rónum árum saman, feitu fólki, Jónínu Ben, Halldóri Ásgrímssyni og fleirum. Því má ekki gera "grín" að andlegri veiki og Ólafi Eff eins og öllum hinum þegar það ber hæst í öllum fréttatímum ??

* Ætla að mæta í spinning í fyrramálið....og ég skal drattast framúr þegar klukkan hringir kl 5:40 :S

Jæja ætla að klára að horfa á Kompás.
PET
  
 

mynd bloggsins í dag!!

28. janúar 2008 klukkan 20:19
Ný mynd: Verið að fagna komu minni í heiminn árið 1980 Svalur Yður er í dag Prinsessa fædd í borg Grindavíkur !!! Þarna munu vera amma mín Petra, Rut hans Gunnsa, mamma og Rósa ljósa nafna mín. Vá hvað mamma er fersk þarna Koss En ég var varla fædd þegar farið var að skála í sherry....kannski þess vegna að ég hafi aldrei bragðað vín. En mér finnst þetta samt mjög skemmtileg mynd og þykir mér voðalega vænt um allar sem eru á þessari mynd.

En yfir í annað.
Við fjölskyldan fórum öll á Skilaboðaskjóðuna í gær og var þetta hin besta skemmtun. Enduðum við svo í vöfflum og fleira góðgæti hjá Heiðmundi, Bryndísi og dætrum. Alltaf gott að heimsækja þau.
Á laugardagskvöldið var ég að þjóna á árshátíð Icelandair og var þetta mjög flott árshátíð í Laugardalshöllinni. Allskonar skemmtiatriði og svo lék Jagúar undir dansi. Þeir eru alveg flottir hljófæraleikarar en ekkert sérstök ballhljómsveit af mínum smekk að dæma þarna. Hitti ég nokkra gamla samstarfsmenn þarna sem unnu með mér í hreinsuninni í "gamla" daga. Bara gaman af því. 
En é gog Berglind Anna komumst heilar heim um nóttina eftir að hafa verið rúman klukkutíma heim úr höllinni. Í brjáluðu roki, slabbi og hálku vorum við á 30 á Grindavíkurveginum og samt nærri því foknar út af þrisvar sinnum. En heim komumst við heilar á höldnu með skynsemina að vopni.

En eitt ráð í lokin. Ég vil bara hvetja ykkur til að fylgjast með kassakvittununum ykkar. Er í því að leiðrétta kvittanir frá mér þar sem ég er látin borga oft sama hlutinn. Og finnst mér þetta vesen leiðinlegt. Einu sinni var ég látin borga 12 tannkremstúpur í bónus.....hvaða venjulegt heimili kaupir 12 tannkremstúpur í einu GráðugurHissa En það var bara leiðrétt þó ég hafi ekki fattað þetta fyrr en ég var komin heim. En þetta er leiðinlegt vesen en óþarfi að borga meira en maður þarf. 

Kveðja
Petra Rós..... sem er farin að skoða það að efna eld gamalt loforð í sveitina Óákveðinn


 

Blogg dagsins í dag

22. janúar 2008 klukkan 13:30
Núna er komin alveg hreint snilldar mynd í hausinn af mér með foreldrum mínum :D Er þetta svona ein af þeim myndum sem verða betri og betri með aldrinum Glottandi En ég ætla að skipta oft um myndir svo endilega fylgist bara með. **uppfært....búin að setja nýja mynd þar sem mamma fór eitthvað að skipta sér af og stökkbreytti mér í Ragnheiði ....þar sem þessi mynd var víst tekin 1974 og þá var ég víst ekki orðin hugmynd !! haha

Af okkur hérna í snjóvík er allt gott að frétta. Núna er komin þessi fína rigning og rok. Allt á floti allstaðar núna. Að vísu þarf að rigna í nokkra daga til að hreinsa bæinn af öllum snjónum sem datt niður hérna í Grindavík eins og þruma úr heiðskýru lofti.

Í gær var ég bara myndarleg og baðu foreldrum mínum og ömmu í mat. Stundum gleymir maður bara alveg að það er svo lítið mál að bjóða fólki í mat. Það þarf ekkert að vera allt "spikk og span" í húsinu því samveran er það sem maður sækist eftir eins og ein sagði. Ætla ég því að fara að vera duglegri að bjóða fólki heim til mín. Það er svo gaman að hittast. Eruð þið ekki sammála því ? Maður er stundum að bókstaflega að gleyma sér stundum. Eyðum meiri tíma í merkilegu hlutina.

Núna um næstu helgi er nóg að gera hjá mér. GRV spilar sinn fyrsta leik við ÍA þar sem Halli er þjálfari en hann þjálfaði okkur í fyrra. Svo á laugardeginum er ég að fara að vinna með liðinu við veislu í Laugardalshöllinni. Og á sunnudeginum erum við fjölskyldan að fara í leikhús á skilaboðaskjóðuna. Svo þetta verður bara skemmtileg helgi.

Þessa dagana er ég bara ein að hanga heima með krakkana sofandi á kvöldin þar sem Unnar er svo mikið í Sandgerði að vinna í gamla bílnum. Svo ef þið hafið ekkert að gera endilega rennið í kaffi og spjall til mín ;)

En þangað til næst
PET

***ÁFRAM ÍSLAND***


úti er alltaf að snjóa !!!

15. janúar 2008 klukkan 17:12
Heyrðu það er ekkert smá veður búið að vera í Grindavík síðustu 2 daga. Ég fór í Reykjavík á sunnudaginn og var að renna inn í bæinn kl 16:30 og þá var að byrja aðeins að snjóa. Heyrðu um kvöldið fór ég aðeins í heimsókn í nýja hverfið ( 241 Grindavík !!) og þegar ég ætlaði heim kl 11 um kvöldið hélt ég að ég kæmist bara ekki heim fyrir snjó og hálku. En fjórhjóladrifni Golfinn klikkaði ekki og kom mér heilli á húfi heim. Um morguninn þá vöknuðum við bara eins og venjulega.....eða nei ekki eins og venjulega því við vorum ekkert á leiðinni í vinnuna eða skólann því það var snjór upp á þak nánast. Já og ég er ekki að ljúga Hissa En við vorum því bara inni í gær enda ekkert ferðaveður og þvílíkur skafrenningur. Krakkarnir fóru nú reyndar út á pall að leika enda þokkalegt skjól þar og nóg af snjó.
Ég er búin að taka fullt af myndum sem ég ætla að sýna ykkur ef ég kem þeim í tölvuna :S er eitthvað að stríða mér. En ég nýtti tímann vel í gær og græjaði tölvuherbergið mitt og setti saman hillur og kom þeim á sinn stað ein og óstudd !!!  Svo tölvuherbergið mitt er orðið svo fínt.

Í kvöld er svo matarboð hjá mömmu og pabba þar sem það fór "í snjóinn" í gær. Er þetta matarboð því í gær 14. janúar voru 22 ár síðan Hjalti bróðir dó. Vá hvað tíminn er fljótur að líða. Ég man ennþá eftir nóttinni sem ég var send til Gunnars Freys í pössun.

En jæja ætla að vera dugleg að skipta um mynd í hausnum á síðunni. Á svo margar skemmtilegar myndir. Þessi mynd sem ég setti inn núna er af okkur bestu vinkonunum og er held ég tekin árið 1990.

Kveðja
PET
p.s. ég labbaði báðar leiðir í leikskólann með Unu Rós á sleðanum :D 
En ég óska líka eftir æfingafélaga til að far aí ræktina einhvern tímann á milli 12 og 14. Þarf að vera mætt þá á leikskólann. Einhver sem gefur sig fram ??? hmm       
 

skanni

08. janúar 2008 klukkan 16:34
Hann fær alveg þvílíkt stóra rós í hnappagatið sá sem"fattaði upp á" tölvuskannanum !!!
Er komin aftur í ham að skanna inn allskonar myndir og vonandi get ég sett eitthvað inn hérna. En ég verð allavega dugleg að skipta um mynd hérna á blogginu.

Hérna kemur ein forsíðumynd fyrir þig Birgitta.....þessi ætti að rifja upp skemmtilegan tíma á Landsmóti unglingadeilda fyrir austan !!

Kveðja
PET

dóttir mín spilarinn

04. janúar 2008 klukkan 15:43

það er sko ekki hægt að spila við dóttur mína sem er 5 ára minnisspil. Hún rústar mér og restinni af fjölskyldunni :S alveg sama hvað ég legg mig fram og ætla sko að vinna hana Hissa Ótrúlegt minni sem hún hefur.
 
Bitur mamma sem er ekki að meika það eftir 4 töp í röð !!

Nýtt ár....gamla árið

01. janúar 2008 klukkan 14:41
Jæja þá er komið nýtt ár og er þá ekki um að gera að fara yfir "gamla" árið.

Janúar. Dóttir Jóhönnu og Halldórs skírð Stefanía Ósk. Spiladagurinn hjá fjölskyldu Unnars. Héldum óvænta afmælisveislu fyrir Ömmu en hún varð 85 ára. Hafði hún ekki hugmynd um að eitthvað væri í gangi. Verkalýðshúsið fullt af fólki.

Febrúar. Húsbóndinn 32 ára 7. febrúar. Leikhúsferð með Óla og skólanum á Sitji guðs englar. Æfingar á fullu í fótboltanum. Ohh hvað undirbúningstímabilið getur verið erfitt.  Laufey á Elvar Þór 1. febrúar.

Mars. Fjáraflanir á fullu fyrir æfingaferðina. Deildarbikarinn á fullu. Gamla konan búin að skora nokkur mörk.

Apríl. Keyptum okkur fellihýsi í byrjun apríl og núna á að fara að ferðast á milli fótboltaæfinga og leikja. Ég sjálf varð 27 ára 3. apríl. Við stelpurnar í GRV fórum í æfingaferð til La Manga og var svakalega gaman. Árshátíð Unghjónaklúbbsins á Stykkishólmi.

Maí er afmælismánuðurinn mikli á mínu heimili þar sem bæði börnin eiga afmæli. Haldin var stór grillveisla fyrir ættingja og vini. Fyrsti leikurinn í Íslandsmótinu var á afmælisdegi dótturinnar 22. maí. Stóð "gamla" konan sig vel og sett´ann beit úr aukaspyrnu af 35 metra færi og gaf eina stoðsendingu ;) Unnum við leikinn 2-1. Ég var svo tekin í netviðtal hjá hinni hliðinni á fotbolti.net 
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=48048 . Get svo ekki annað en minnst á lát hetjunnar Ástu Lovísu en ég var búin að fylgjast með henni lengi á netinu. Ótrúleg hetja þessi unga kona. 

Júní. Seldum fellihýsið sem við keyptum í byrjun apríl og fengum okkur nýrra og stærra. Ekki leiðinleg skipti þar. Hitt var ekki alveg að uppfylla okkar kröfur. 12. júní áttum við Unnar svo 3ja ára brúðkaupsafmæli. Í lok júní fórum við vinkonurnar, ég og Erla Ósk ásamt fullt af öðru fólki í Jónasmessugönguna og í Bláa Lónið. Mjög skemmtilegt kvöld. Útilega Unghjónaklúbbsins. Ólafur Þór fór með Margréti frænku sinni í viku í sumarbúðir í Kaldárssel. Sá leikur verður örugglega endurtekinn að fara í sumarbúðir. Allar í vinkonuhópnum náðum að hittast á Deco í júní og það gerist sko ekki í hverjum mánuði.

Júlí einkenndist af góðu veðri, sundlaugarferðum, útilegum, bústaðaferð og fleiru skemmtilegu. Byrjaði í sumarfríi með dótturinni. Unnar og Una Rós fóru á ættarmót á meðan ég og Óli fórum á Ólafsfjörð að keppa á Nikulárarmótinu og eftir það mót fórum við til afa Dodda og Nonna frænda í sveitina. Fórum svo í Atlavík með Guðfinnu, Yngva, Kjartani, Björgu og börnum í Atlavík og vorum þar í nokkra daga í mjög góðu veðri. 

Ágúst. Vorum við Apavatni um verslunarmannahelgina með slatta af Grindvíkingum. 18. ágúst var svo annasamur dagur í mínu lífi !! átti að vera á 4 stöðum nánast í einu. En það endaði á því að ég keppti við BÍ í Grindavík og brunaði svo beint út á flugvöll og flaug til Egilsstaða og fór þaðan yfir til Seyðisfjarðar í brúðkaup hjá Siggu frænku minni og Richard. Unnar hafði keyrt austur um morguninn. En við skildum Cruiserinn eftir fyrir austan hjá nýjum kaupanda og tókum "nýja" bílinn heim, grænan WV golf sem við tókum, uppí. Ólafur Þór byrjaði svo í 4 bekk hjá Mörtu. Fótboltatímabilinu og þar með fótboltaferlinum lauk í enda ágúst Gráta en ég fer svo sem sátt við minn feril. En þetta tekur á að hætta því sem manni finnst svona hrikalega skemmtilegt.

September. Unnar fór og veiddi eitt stykki hreindýrsbelju og kálf fyrir austan hjá Ómari. Una Rós byrjaði í skólahóp á leikskólanum. Keypti mér loksins kort í ræktina í enda mánaðarins eftir mikla hreyfi leti !!!  Óvissuferð hjá fótboltanum. Grindavík vann 1. deildina í karlaboltanum og tókum við vel á móti þeim með blysum og flauti í grenjandi rigningu um miðnætti. Lokahófið var svo haldið daginn eftir og komu stelpurnar mér á óvart og gáfu mér nudd fyrir 2 í bláa lóninu og voru búnar að búa til pistil og kort handa mér og þótti mér það ótrúlega vænt um það. Svo á lokahófinu fékk ég þann góða titil : Mikilvægasti leikmaður meistarflokks :D Og var ég voðalega stolt af því. Kúrekapartý hjá Unghjónaklúbbnum með Árna Johnsen. Ótrúlegur kall.  

Í Október fórum við til flórída með vinnunni minni í árshátíðarferð og var það mjög skemmtileg ferð. Hiti, sól og sæla. Fyrsti snjórinn kom. Í lok október fór ég með saumaklúbbinn út að borða á Caruso en ég vann það í saumaklúbbaleik á Létt Bylgjunni. Hrikalega góður matur.

Nóvember. Marta kennarinn hans Óla lést í byrjun nóvember eftir snörp en mjög erfið veikindi. Var þetta mjög erfiður tími. Kona í blóma lífsins tekin frá okkur. Blessuð sé minning hennar.  Fórum til Amsterdam í árshátíðarferð með Lagnaþjónstunni. Mjög skemmtileg ferð. Fór bara í algjöra leti og skemmtun. Ekkert verslunarkjaftæði !! Svo í lok mánaðarins fór ég í mína 4 og síðustu utanlandsferð á árinu en þá var ferðinni heitið til Glasgow með stórum hópi kvenna og var sú ferð alveg tær snilld. Aðalfundur Unghjónaklúbbsins og ég hætti sem formaður. Er núna bara "óbreyttur" félagsmaður.

Desember. Jólamánuðurinn mikli. Jólahlaðborð hjá Grindavíkurbæ. "afmælis og jólaboð" hjá fjölskyldunni hjá Unnari og spilað bingó og borðaður góður matur. Una Rós fékkaðalvinninginn. Fékk litla frænku 11. desember þegar Oddný Ragna átti Guðnýju Birtu. Mamma og pabbi fluttu út úr Selsvöllunum ( fæðingarstað mínum) og upp í nýja hverfi. Tók þátt í jólaæfingunni hjá stelpunum í GRV. Ohh hvað það er gaman í fótbolta Koss Fékk símtal frá Erlu frá Ameríku en þá voru hún Wissler ný búinn að biðja hennar og því verður brúðkaup innan skamms :D Tengdó var hjá okkur á aðfangadag. Fengum að vita í jólakorti að Ragnheiður sysit rætti von á 3ja barninu í lok maí. Einnig á Nonni bróðir von á barni (eða sko Ágústa !!) í júní. Svo það er nóg að gera  Hlæjandi Á gamlársdag vorum við hérna hjá okkur, við, mamma og pabbi og Ragnheiður og fjölskylda. Hjödda, Maggi, Erna Rún, Óðinn, Berglind Anna og amma komu svo í heimsókn.
  

Þá er það helsta upptalið og vona ég að ég sé ekki að gleyma neinu. Ef svo er þá bara kommentið það.
 
Svo á næsta ári er margt í gangi. Dóttirin verður víst 6 ára á árinu og er að leiðinni í skóla næsta haust. Sonurinn verður 10 ára og nálgast unglingsárin hratt !!! Ég sjálf stefni á ýmislegt, sumt má segja en annað ætla ég bara að halda fyrir mig þar sem það er oft betra ef maður stendur ekki við hlutinn Glottandi Við stefnum á að ferðast mikið innanlands í sumar. Nýta fellihýsið vel. Laga garðinn hjá okkur og svo ekki síst að vera duglegri að rækta vina og fjölskylduböndin. Oft þarf ekki mikið til. Þannig að ég lít árið framundan með miklum bjartsýnisaugum.

Gleðilegt nýtt ár allir saman
PET
 

annar í jólum

26. desember 2007 klukkan 20:46
Þá eru jólin bara senn á enda. Erum við ábúendur á Hraunbraut 3 búin að hafa það mjög gott og rólegt yfir hátíðirnar.
Jólasteikin rann ljúft niður og var Una Rós mjög dugleg að taka af borðinu og skafa í ruslið og setja í uppþvottavélina því hún gerði allt til að flýta fyrir svo pakkarnir yrðu opnaðir sem fyrst Glottandi Ég man ennþá eftir þessum árum sem mér fannst fullorðna fólkið full rólegt í þessu !!!
Alltaf er svo gaman að opna jolkortin en í ár var 1 jólakort sem vakti meiri athygli en önnur en í því korti var sónarmynd og tilkynnt koma erfingja í enda maí .....bara gaman að því Hlæjandi Svo okkur fjölgar hratt fjölskyldunni.

Í dag fóru feðgar í fjórhjólaferð á meðan við mægður skelltum okkur á jólaball ....líklega með síðustu böllum sem haldið verður í Festi.

Núna eru 4 frændsystkinin að leika sér saman inni eftir að hafa verið úti að búa til snjóhús og liggjum við Unnar eins og skötur uppi í sófa og glápum á sjónvarps og tölvuskjái. Þvílíkt letilíf .....

Vonandi hafið þið öll átt gleðilega hátíð.
PET