Helgin framundan
Vil svo byrja á að óska íslenska kvennalandsliðinu innilega til hamingju með þennan frábæra árangur sem liði hefur náð. Þær gjörsamlega rúlluðu yfir Írana í gær. Frábært. Hef fulla trú á þeim í lokakeppninni. Það er einmitt fyrir svona stundir sem maður getur alveg réttlætt það að elta tuðru út um allan völl og koma honum í netið

En þar sem núna er orðið svo stutt í settan dag sem er á mánudagin þá er kominn upp "veðbanki" hérna í athugasemdum varðandi kyn, fæðingardag og stærð. Hef ég heyrt alls konar hugmyndir í sambandi við þetta og eigum við ekki bara að hafa gaman að þessu og setja upp spádómsgleraugun
En ég sjálf hef farið í svo marga hringi hvort þetta sé stelpa eða strákur að ég veit varla í hvorn fótinn ég á að stíga hahaha.Litli ljósmyndarinn minn hún Una Rós ætlar sko að taka nýjar bumbumyndir í dag sem ég set svo inn á www.ou.barnaland.is
En vá funduð þið jarðskjálftann sem var að koma ??
Kveðja
Petra Rós 39 vikur + 4 dagar
eins gott ađ mađur bloggi fyrst svona margir eru ađ lesa !!!
Svo ég verð að standa mig í stykkinu.Í gær var farið í gluggaskipti á þessu heimili. Eftir að hafa fengið allt sem til þess þurfti en það klikkaði eitthvað og fengum við ekki glerið um leið og gluggana. En við skulum ekkert ræða það frekar því ég er svo ánægð að gluggarnir skuli vera komnir í. Mættu húsasmíðameistararnir úr Sandgerði sem við erum svo hriklaega heppin að eiga að og rumpuðu þessu öllu af í gær. Svo núna tekur við þrifnaður hjá mér eftir allt þetta steypuryk svo ég verð ekkert aðgerðarlaus þótt ég hafi ákveðið að í dag væri dagurinn sem ég mundi slaka á í vinnunni enda komin 39 vikur og styttist í að þriðji erfinginn líti dagsins ljós. Og er komin svolítil spenna á þetta heimili. En bara góð spenna. Una Rós telur niður dagana í settan dag og Ólafur Þór er í því að strjúka bumbuna. Örugglega að fara með í huganum í leiðinni...vonandi ertu strákur....vonandi ertu strákur. Því hann langar sov í bróður. En systur hans langar svo í stelpu. En vonandi verður barnið bara heilbrigt.
Una Rós er farin að biðja mig um að vera ekki marga daga á spítalanum !!! Ég verði að koma eiginlega bara strax heim til hennar. En ég sagði henni að þetta væru örugglega svona 3 dagar og ég held hún hafi verið sátt við það. Veit ég svo ekki hvort hún ætli að passa pabba sinn þegar ég er ekki heima eða hvort hann eigi að passa hana
Hún er svo mikil húsmóðir. Tekur t.d. úr uppþvottavélinni og raðar á borðið. Á laugardaginn fórum við í Martak í smá menningarferð. Kíktum við í Reykjanesvirkjunina þar sem Hitaveitan er með sýningu sem er mjög áhugaverð um loft, jörð og mennina. Rosalega flott og get ég alveg mælt með því að fólk renni þangað út eftir og skoði. Ýmis fróðleikur þarna sem maður vissi ekki og einnig svo flott uppsett. Við renndum svo í Sandgerði til Mörtu í Púlsinum og hristi hún okkur saman og var það mjög skemmtilegt. Dans, hláturjóga, samæfing, og traust leikir. Mjög svo skemmtilegt. Í lokin þá borðuðum við ljúffenga máltíð í Lava salnum í Bláa Lóninu. Ummmm er ennþá með vatn í munninum....***slef**
Það er búið að vera nóg að gera undan farnar helgar og er ég núna komin á pásu í bili. Er í hreiðurgerð og einnig í jólagjafastússi. Kreppan hefur ekki bankað fast á mínar dyr ...allavega ekki ennþá en auðvitað finna alir fyrir þeim verðhækkunum sem eru í gangi og þá sérstaklega í mat. En ég hef aldrei þakkað jafn mikið fyrir að eiga bara dótið mitt og skulda "bara" í Íslenskum krónum í húsinu mínu. Svo ekki kvarta ég. En auðvitað fer maður að hugsa meira í hvað peningarnir manns eru að fara.
Eyðum bara meiri tíma með fjölskyldu og vinum. Það kostar ekkert
Nema kannski að gefa kaffi og kex híhíhí.Núna er s.s. fyrsti dagur í "afslöppun" og orkuhleðslu fyrir átökin og ligg ég undir teppi að horfa á Opruh. Búin að koma ungunum í skólann og allt svo rólegt hérna. Svo notalegt.
Jæja ætla að reyna að ná mér í smá kríu eftir langan erfiðis dag í gær.
PET
Borg óttans í gćr
Ég ætla sko að verða flottasta mamman á fæðingardeildinni .....með engin naglabönd eða sigg á hælunum og rennislétta húð hahahaEn ég kláraði líka jólagjafirnar í gær í bænum en á þá bara börnin mín eftir. Þarf að hugsa það aðeins betur. Gat meira að segja keypt efni í merkisspjöldin sem ég föndra og einnig keypt jólapappírinn í IKEA svo þetta er allt að verða komið á mínu heimili og ætla ég svo að dunda mér fram að jólum við þetta dúllerí.
En núna eru 11 dagar í settan dag og fer það ekkert fram hjá mér þar sem dóttir mín telur ákveðið niður dagana. Og þá er bara spurning hvort læknavísindin ætli að breyta út af vananum núna hjá mér og láta barnið koma í heiminn á settum degi. Ég er ennþá að vinna en ætla að klára morgundaginn og keyra launin í gegn og fara svo í frí þannig að ég mæti bara þegar ég nenni. Ætla að fara að koma barnaherberginu í sitt rétta horf. Keypti flottar myndir á veggina og eitthvað punt.
Skoðanakönnunin hérna til hliðar er innan skekkjumarka og er það bara 50/50 hvort þið haldið að þetta sé stelpa eða strákur. Þannig að ég verð að bíða lengur. Maggi í Jóa Útherja er alveg viss um að þetta sé strákur !! Og er hann búinn að taka mig í "test" í hvert sinn sem ég fer og kíki í búðina. Bara snillingur þessi kall

En núna hef ég bloggað svona "reglulega" en ekki fengið mikið af commentum frá lesendum sem ég veit að eru margir að fylgjast með mér úr felum ....hvernig væri nú að setja mitt mark á síðuna allavega svona í 8 hvert skiptið sem þið kíkið
Annars nenni ég ekkert að vera að skrifa bara fyrir sjálfa mig !!!Adios...og ég bíð spennt eftir öllum kommentunum
PET
38 vikur nálgast
Ragnheiður systir hlær bara að því þegar ég segi að fólk sé að segja við mig að ég sé nú bara með netta kúlu ....en ég segi bara að brjóstin bjargi mér þar sem þau séu svo stór virki kúlan frekar lítil. En þetta sama sagði Konráð við Ragnheiði þegar hún kom í gagnsetningu gengin nánast 42 vikur og svo átti hún tæplega 20 marka bolta !!! Og ÆTLA ég ekki að eiga 20 marka barn svo það sé á hreinu. Alveg nóg 17-18 merkur. Fín stærð. Bumban er mæld í hverri mæðraskoðun og eiga cm að vera sama og vikurnar segja þeir. Ég var 39 cm í 37 vikna skoðuninni og er þetta myndarbarn sagði Sólveig. Svo sjáum við bara til hvernig þetta fer.
En hérna stefnir í gluggaskipti og vonandi verður það búið fyrir komu barnins og verð ég svo fegin þegar þeir verða komnir í.
Þarf víst að finna eitthvað í matinn svo þetta nægir í bili.
Minni svo á barnalandssíðuna okkar sem er komin aftur í gang www.ou.barnaland.is
PET
Páll Óskar

Vá hvað mér finnst maðurinn vera flott persóna
er bara hann sjálfur og brosir framan í heiminn. Hann hefur ótrúlega útgeislun og bara allt...fyirr utan hvað hann er góður söngvari. Enda fékk ég hann til að syngja í brúðkaupinu mínu og sé sko ekki eftir því.
En ég horfði á Kompás í gær og fannst mér hann koma best út úr þættinum. Og vonandi hefur hann hreyft við einhverjum með hans sögu. Hann var einmitt hjá Evu Maríu í spjallþættinum hennar síðasta vetur minnir mig og þar fannst mér svakalega gaman að hlusta á hann enda var hann búinn að vera báðu megin við borðið.....með fullt af peningum og vissi ekkert hvað hann átti að gera við þá og þeir fóru bara í einhverja vitleysu og svo að fara út í einhvert eyðslufillerý og plötuútgáfu sem ekki gekk og vera gjörsamlega með rassinn í buxunum.
Kveðja
PET sem finnst þessi maður bara ótrúlega blátt áfram og flottur og fer ekkert í felur með það
p.s. eigum við nokkuð að ræða þessi erlendu bílalán ?? shit ...vá hvað ég er fegin að eiga bílinn minn ....og svo eigum við líka gamla bílinn alveg sjálf 
Styttist í svo margt
22 dagar í settan fæðingardag
72 dagar til jóla
79 dagar til áramóta og svo framvegis.
Ég er farin að kaupa jólagjafirnar og er búin að ákveða nánast allar hinar sem ekki eru komnar í hús. Vinn svo líka að ákveðnu verkefni sem tekur þokkalegan tíma en ég hlakka svo til að sjá útkomuna þegar ég er búin.
Er líka búin að vera svakalega dugleg undan farið að taka vel til hjám ér og henda og dreifa fötum sem eru orðin of lítil á börnin mín á þá staðia sem hægt er að gefa þeim framhaldslíf.
Er ennþá að vinna eins og venjulega og verð það örugglega fram á síðasta dag enda þarf ég að reikna út laun og klára mánaðarmótin. Þá má barnið koma.
Spenningurinn farinn að aukast eftir litlu systkini og verð ég með flottar hjálparhendur við að hugsa um litla krílið. Mikið er deilt um það hvort þetta verði stelpa eða strákur og erum við foreldrarnir í því að reyna að segja að það skipti engu máli hvort kynið komi. Svo enginn verði vonsvikinn þegar "rétta" kynið fæðist ekki.

Tók Silver crossinn niður af hillunni í skúrnum í dag og er búin að vera að bóna og viðra hann í dag. Svo núna stendur hann tilbúinn í barnaherberginu ekkert smá flottur

Annars er bara allt við það sama hjá okkur. Og ætlum við ekki að láta kreppuna hafa áhrif á okkur og hef ég máltækið: feisaðu fram á við fortíðin er að baki. að leiðarljósi þessa dagana og horfum á það sem er jákvætt ekki það neikvæða. Það hefur góð áhrif.
Ég held að þjóðin komi sterkari út úr þessu og þetta hægi á hraða lífsins og fólk fari að forgangsraða öðruvísi og setji fjölskylduna ofar dauðlegum hlutum.
Gleymum kreppunni og föðmumst og kyssumst eins og starfsmenn Glitnis gerðu hérna um daginn !!!
PET
hugleiđingar í sambandi viđ međgöngu
***Þá byrja ég á því að ég var að lesa í Vikunni um konur sem elska alveg börnin sín en bara þoldu ekki að vera óléttar. Mér finnst þetta skrýtið að geta ekki notið þessa tíma þar sem ég hef alltaf verið svo hress og því bara notið þessa tíma. En það eur til konur sem ru ekki vel stemmdar til að vera óléttar og jafnvel með líkamlega kvilla sem ekki hjálpa til. En svo ætlast allir til þess að allir séu svo hamingjusamir og allt í gúddí og er mjög erfitt fyrir þessar konur að hitta anað fólk.
***Svo er það með þetta að ef þú ert með kúlu þá mega allir strjúka þér um magann. Hvað er það ??? Það vilja ekkert allir að það séu bara einhverjir úti í bæ sem eru að snerta þær. Ekki mundi maður gera þetta við bara venjulegar konur sem ekki eru óléttar.....svo af hverju ætti þetta að vera bara sjálfsagt þegar þú ert ólétt ?? Bara svona smá hugleiðing. Því það er ótrúlegt hvað ókunnugt fólk heldur að það megi.
***svo er það brjóstagjöfin. Það geta ekki allar konur verið með börnin á brjósti. Og þá á bara að virða það. En ég hef alveg staðið mig sjálfa af því að spyrja konur sem eru að gefa ungum börnunum sínum pela : Hva af hverju er hann/hún ekki á brjósti ??? og getur þetta haft mjög sálarleg áhrif á móðurina að allir séu að spyrja hana að þessu ef hún hefur kannski viljað hafa barnið á brjósti en ekki getað.
***svo er það annað núna þegar fólk spyr mig hvenær ég sé sett. Þá segir fólk oft....já þetta kemur allt saman þótt mér finnist tíminn líða hægt !!!! Og ég svara því bara að ég sé ekkert þreytt og tíminn líði nú bara alveg jafn hratt núna og hann gerði áður. Fyndið hvað einhver lína er sett og þegar líður að fæðingu þá á tíminn að líða mjög hægt. Ég er sammála því en þá ekki fyrr en eftir 40 viku, þá fer tíminn að líða hægt.
En ég er bara mjög hress og því finnst mér gaman að víkka út sjóndeildarhringinn og lesa það sem aðrar tilvonandi mæður upplifa þennan merkilega atburð að ganga með og eiga barn. En fyrir mér er þetta stórkostlegur tími og eins að hafa barnið á brjósti en hingað til hef ég mjólkað eins og verðlaunabelja !!! Og vonandi verður svo með nýja barnið líka.
snilld hjá syni mínum
Ég tékkaði á klósettin og kallaði Óli !!! Óli !!! og enginn svarar mér. Mér er hætt að lítast á blikuna á þessu augnabliki og geng um húsið og kveiki ljós og kalla. Enginn svara og enginn Óli finnst. Una Rós athugar með skóna hans og við finnum út að þá vantar. Þá fór nú í gegnum huga minn að hann hefði bara farið út í svefni og úti beið allt hvítt. En þegar ég opna útidyra hurðina þá segir sonur minn: Góðan daginn mamma. Ég fór út að gera góðverk og er bara að skafa bílinn. Þarna fór hjartslátturinn niður en hann var farinn að hækka því ekki gat ég hugsað það til enda ef hann hefði nú labbað í svefni út eða eitthvað þannig.
En drengurinn var bara úti að gera góðverk :D haha
